Vefverslun
Lausn gegn rakauppsogi

30 ára ábyrgð og uppfyllir alþjóðlega ISO-staðla.

Rafosmósutækið er mjög auðvelt í uppsetningu, krefst engra framkvæmda eða inndælingu efna og hefur sannað sig í fjölda landa, með yfir 30 ára reynslu á markaðnum. Óháðar mælingar hafa sýnt að rafosmósutækið getur skilað jafn góðum eða betri árangri en hefðbundin drenun.

Rafosmósutækið
Engar stórar framkvæmdir
30 ára ábyrgð
Viðhaldsfrí lausn
Einföld uppsetning
Hvernig berst raki upp í veggi?

Byggingarefni geta dregið raka upp úr jarðvegi

Þetta getur gerst vegna þess að byggingarefni virka eins og svampar og draga raka upp í veggina.

Þessi raki, svokallaður hárpípukraftur, getur valdið miklum skemmdum á húsnæði. Þetta getur einnig haft mikil áhrif á loftgæði og valdið heilsutjóni.

Í eldri byggingum er þetta sérstaklega algengt þar sem undirstöður eru oft í beinni snertingu við rakan jarðveg án nægilegrar einangrunar.

Ef ekki er brugðist við rót vandans mun rakinn halda áfram að koma aftur og aftur, þrátt fyrir málningu, inndælingu eiturefna og aðrar tímabundnar lausnir.

  • Byggingarefni geta dregið raka upp úr jarðvegi
  • Tímabundnar lausnir virka ekki og eru kostnaðarsamar til lengri tíma
Rakaskemmdur veggur
Hvernig hefur uppsog raka áhrif?

Rakinn kemur frá jarðvegi og getur haft áhrif á veggi, inniloft og vellíðan.

Raki í veggjum skemmir ekki aðeins húsnæðið heldur hefur einnig áhrif á loftgæði og heilsu fólks sem þar býr, vinnur eða dvelur.

Í byggingunni

Skemmir múrhúð og málningu
Myndar rakabletti og sýnilegar skemmdir.
Veikir gifs og múrblöndur
Veldur sprungum og dregur úr styrk og endingu veggja.
Tærir málmhluta
Skemmir festingar og burðarstyrkingar.
Skemmir gólfefni og innréttingar
Rakinn hefur áhrif á efni og yfirborð

Heilsa

Eykur raka í innilofti
Hefur áhrif á lífsgæði og vellíðan
Veldur ofnæmi og öndunaróþægindum
Sérstaklega hjá viðkvæmum hópum.
Veldur myglu
Sérstakega við lélega loftræstingu.
Getur valdið mustulykt
Skapar óþæginlegt og þungt inniloft.
Rafosmósutæki

Háþróuð tækni sem stöðvar rakauppsog úr jarðvegi

Varanleg lausn sem þurrkar veggina

Tækið okkar, á stærð við lítið nestisbox, sendir frá sér örrafboð sem stöðva rakaflæði í veggjum og beina rakanum aftur niður í jarðveginn.

Veggirnir þorna þannig smám saman á náttúrulegan hátt án þess að þörf sé á að brjóta veggi eða framkvæma umfangsmiklar lagfæringar.

Lausnin er hljóðlát, viðhaldsfrí, orkusparandi og umhverfisvæn.

Tækið hefur skilað staðfestum og mælanlegum árangri í þúsundum bygginga um allan heim. Það uppfyllir alþjóðlega gæðastaðla og kemur með 30 ára ábyrgð og endurgreiðslurétt samkvæmt skilmálum.

Rafosmósutæki
  • 30 ára ábyrgð
  • Varanleg lausn sem þurrkar veggina
  • Þýsk framleiðsla, ISO-vottað
  • Tækið er lítið í sniðum (20cm x 20cm x 6.5cm)
  • Mælanlegur árangur með fyrir og eftir mælingum
  • Umhverfisvænt, lítil sem engin orkunotkun
  • Hentar öllum byggingarefnum
  • Einföld uppsetning, engar framkvæmdir
  • Tæki sem hentar allt frá litlum íbúðum yfir í stór atvinnuhúsnæði
  • Mun hagkvæmari lausn en hefðbundin drenun
Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og helstu eiginleikar tækisins

Tækið uppfyllir alþjóðlega staðla um rafsegulsvið og öryggi heimilistækja og er framleitt í samræmi við ISO 9001 gæðastaðla.

ISO 9001 FCC certified
Rakamæling á vegg
Orkunotkun2W
Orkugjafi12VC – 1,5A
LosunMjög lág tíðni
Þyngd2,1 kg
Stærð200 × 200 × 65 mm
VerkunarsviðHentar mannvirkjum af öllum stærðum, allt frá litlum íbúðum til stærri atvinnuhúsnæða og stofnana.
ICNIRPRáðleggingar um takmörkun á útsetningu fyrir rafsviðum, segulsviðum og rafsegulsviðum
1999/519/EB · RD 1066/2001Vernd almennings á rafsegulrófinu
UNE-EN 50366Heimilistæki og sambærileg tæki – rafsegulsvið
EMC staðlarUNE-EN 61000-6-3:2007, IEC 61000-6-3:2006, UNE-EN 61000-6-1:2007
FCCStaðall fyrir heimilistæki
ISO 9001Tækið er framleitt í samræmi við ISO 9001 gæðastaðla
Hafa samband

Hafðu samband við okkur í dag

Við hjálpum þér að finna réttu lausnina og bestu tilboðin á verði sem hentar þér.

Hafa samband

Sendu okkur línu og við höfum samband sem fyrst.